Íslenska auglýsingastofan hlaut fern Euro Effie verðlaun fyrir „Ask Guðmundur“ herferðina, sem er hluti af Inspired by Iceland herferð Íslandsstofu. Íslenska auglýsingastofan var tilnefnd til fjögurra verðlauna og sigraði í öllum flokkum og fékk að auki sérstök Grand Prix dómaraverðlaun.

Fyrsta sinn í sögu Euro Effie

Það er í fyrsta sinn í sögu Euro Effie verðlaunanna sem slíkt gerist. Herferðin er þegar orðin ein verðlaunaðasta ferðaþjónustuherferð heims, en hún vann Gull Euro Effie árin 2011 og 2013. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Brussel í Belgíu í gærkvöldi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslensku auglýsingastofunni.

Spurðu Guðmund

„Ask Guðmundur, The Human Search Engine, var samfélagsmiðladrifin herferð sem gerði notendum kleift að spyrja ólíka Íslendinga, sem allir bera nafnið Guðmundur eða Guðmunda, um Ísland, hefðir, náttúru og menningu. Hver landshluti tefldi fram sínum eigin Guðmundi sem sá svo um að svara þeim spurningum sem bárust.

Áhugafólk um Ísland gat þannig fengið ítarlegar, raunsannar og skemmtilegar upplýsingar frá alvöru fólki. Herferðinni bárust yfir 1000 spurningar frá meira en 50 löndum víðs vegar um heiminn. Yfir 100 þessara spurninga var svarað með sérstökum myndböndum sem dreift var á samfélagsmiðlum og má sjá þau á YouTube-rás Inspired by Iceland.

Íslenska auglýsingastofan vann herferðina í nánu samstarfi við The Brooklyn Brothers í London og byggir útfærsla hennar á samstarfi opinberra aðila og íslenskrar ferðaþjónustu og er Íslandsstofa framkvæmdaaðili,“ segir í tilkynningunni.

Fjórir flokkar

Ask Guðmundur herferðin var tilnefnd og sigraði í fjórum ólíkum flokkum; Herferðum sem markaðssetja sig í umhverfi þar sem samkeppni við stór fyrirtæki og vörumerki er mikil, herferðir birtar í ólíkum miðlum með sama eða sambærilegum árangri óháð miðli, herferðir sem markaðssetja tómstundir, skemmtun, ferðalög og fleira og herferðum sem hafa sýnt fram á árangur þrátt fyrir tiltölulega lágar framleiðsluupphæðir.