Margrét Kristmannsdóttir, formaður samtaka verslunar og þjónustu, segir það skipta miklu máli að reyna að ná niður verðum hér á landi í stað þess að ræða eingöngu um launahækkanir.

Á fundinum sagði Margrét að íslenska krónan væri eins og bleikur fíll í herberginu og ræddi um þau vandkvæði sem henni fylgja.