Íslenska samninganefndin í Icesave viðræðunum er farin aftur til London í þeirri von að halda áfram samningaviðræðum við bresk og hollensk stjórnvöld, samkvæmt frétt Bloomberg. Þar er vitnað í Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins sem segir að nefndin verði í viðbragðsstöðu þangað til viðræður hefjist.