Samkvæmt væntingavísitölu Gallup í mars hefur svartsýni íslenskra neytenda aukist talsvert frá síðustu mælingu. Í febrúar var vísitalan rétt yfir hundrað stigum sem gefur til kynna um það bil jafn marga jákvæða og neikvæða svarendur.

Vísitalan fellur hins vegar niður í 87,1 stig nú og hefur ekki mælst lægri frá því í janúar 2002. Þetta kemur fram í hálffimm fréttum Kaupþings.

„Væntingar neytenda sveiflast almennt í takt við gengi krónunnar, enda hefur gengislækkun áhrif á kaupgetu heimila bæði í innfluttri neyslu sem og innlendri með aukinni verðbólgu. Það kemur því ekki á óvart hversu mikið dregur úr væntingum neytenda nú þegar gengi krónunnar er í sögulegu lágmarki,“ segir í hálffimm fréttum Kaupþings.

Dregur úr fyrirhuguðum stórkaupum

Stórkaupavísitalan lækkar um 2,4 stig á fyrsta ársfjórðungi 2008 frá fyrri ársfjórðungi og hyggja því færri á stórkaup nú í upphafi árs, en stórkaupavísitala Gallup tekur mið af fyrirhuguðum kaupum landsmanna á húsnæði, bifreiðum og utanlandsferðum.

Mesta breytingin er í fyrirhuguðum utanlandsferðum, en sú vísitala lækkar um 9,8 stig enda gengisfall krónunnar ferðalöngum ofarlega í huga.