Kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson vann til þriggja verðlaun á tveimur hátíðum um helgina.

Myndin vann til tveggja verðlauna á Listpad kvikmyndahátíðinni í Minsk í Hvíta Rússlandi. Myndin hlaut áhorfendaverðlaun og einnig sérstök verðlaun frá borgarstjórninni í Minsk.

Hrútar unnu einnig aðalverðlaunin, Golden Alexander Theo Angelopoulos fyrir bestu kvikmyndina á kvikmyndahátíðinni í Þessalóníku í Grikklandi og Kvikmyndin Þrestir, nýjasta mynd Rúnars Rúnarssonar, vann einnig til verðlauna á sömu hátíð, fyrir framúrskarandi listrænt framlag.