Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,18% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,22% og sá óverðtryggði um 0,09%. Velta á skuldabréfamarkaði nam 3,5 milljörðum króna. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkði um 0,22% í dag og endaði í 862,9 stigum. Velta var hins vegar nær engin, aðeins 2,7 milljónir króna. Bréf Össurar lækkuðu um 0,54%, en gengi annarra fyrirtækja hreyfðist ekki.