Íslenskir aðilar áttu liðlega 1.081,3 milljarða króna í erlendum verðbréfum í lok síðasta árs. Hlutabréfaeignin hafði aukist um 164,4 milljarða króna frá árinu á undan, eða um 18%. Þetta sýna niðurstöður alþjóðlegrar könnunar á landaskiptingu erlendrar verðbréfaeignar á árinu 2012, sem Seðlabanki Íslands tók þátt i.

Niðurstöður könnunarinnar sýna að erlend verðbréfaeign innlendra aðila var mest í Bandaríkjunum, 247,4 milljarðar króna., en þar á eftir í Lúxemborg, 165,3 milljarðar.

Eins og í fyrri könnunum áttu íslenskir lífeyrissjóðir mest af erlendum verðbréfaeignum, en eign þeirra nam 548,8 milljörðum króna. Eign þeirra hafði aukist um 79,9 milljarða á árinu og nam 548,8 milljörðum í lok árs 2012.

Innlánsstofnanir í slitameðferð áttu næst mest af erlendri verðbréfaeign, eða 356,8 milljarða og höfðu aukið hlut sinn um 95,4 milljarða á milli ára.

Innlend verðbréfaeign erlendra aðila nam 819,1 milljörðum króna í árslok 2012. Eign þeirra var að mestu leyti í langtímaskuldaskjölum, eða um 740,6 milljarðar. Þeir erlendu aðilar sem mest áttu af verðbréfaeignum hérlendis voru skráðir í Lúxemborg. Þeir áttu um 35% af innlendum verðbréfum í eigu erlendra aðila, en þar á eftir komu aðilar skráðir í Bandaríkjunum með um 34%.