Qaboos bin Said, soldán af Óman, hefur keypt keypt sex íslenska hesta og komið þeim til Ómans að því er fram kemur í frétt á vef IcelandvReview. Þess er ekki getið hvað þeir kostuðu eða af hverjum þeir voru keyptir en tekið fram að þetta séu fyrstu íslensku hestarnir sem keyptir hafi verið og fluttir til Mið-Austurlanda. Fyrsta janúar, eða í gær, áttu íslensku hestarnir að taka þátt í miklum hátíðahöldum vegna þjóðhátíðardagsins í Óman sem jafnframt er afmælisdagur soldánsins.