Íslenskir neytendur hafa ekki verið svartsýnni samkvæmt Væntingavísitölu Gallups frá því að mælingar vístölunnar hófust árið 2001. Greiningardeild Glitnis greinir frá þessu.

Vísitalan mælist nú 23,2 stig sem er langlægsta gildi vísitölunnar frá upphafi. Til samanburðar var vísitalan 59, 2 stig í síðasta mánuði og 116 stig á sama tíma fyrir ári síðan. Hæst fór Væntingavísitalan í maí 2007 þegar hún var 154,9 stig.

Þegar væntingavísitalan mælist undir 100 stigum eru fleiri svarendur neikvæðir en jákvæðir á stöðu og horfur í efnahagslífinu. Vísitalan fór  undir 100 stig í mars á þessu ári og hefur haldið sig undir 100 stigum síðan þá.

Vístalan mælir mat neytenda á núverandi aðstæðum í efnahags- og atvinnumálum og væntingum til ástandsins að sex mánuðum liðnum.