Útgáfa smáforritsins The Royal Wedding; Your Personal Guide hefur litið dagsins ljós í netverslun Apple en forritið er gefið út af íslenska sprotafyrirtækinu Locatify. Þetta er samstarfsverkefni nokkurra sérhæfðra fyrirtækja sem leggja fram reynsluríka sérfræðinga, hverja á sínu sviði. Með innblæstri og sameinuðum sköpunarkrafti varð til smáforrit um fyrirhugað brúðkaup Kate Middleton and Prince William sem veitir einstaka og gagnvirka upplifun í formi margmiðlunar.

Þetta segir í tilkynningu um forritið.

„Hér er um að ræða nýstárlegt smáforrit um konunglega brúðkaupið sem byggir á gagnvirku viðmóti og kortum, áhugaverðum frásögnum, GPS staðsetningu, tónlist og ljósmyndum sem fléttast saman og skapa heildstæða mynd af þessari hátíðlegu viðhöfn sem talið er að um 28 milljónir manna fylgist með.

Samstarf

Leifur Björn Björnsson framkvæmdastjóri Locatify hafði umsjón með þróun brúðkaupsforritsins en verkið var unnið í samstarfi við íslenska fyrirtækið Fansy Pants Global. Hugmyndin að forritinu kom frá félaga Locatify í Bretlandi, Nicholas Craig eiganda StrollOn, efnisvinna var í höndum leikkonunnar Flora Montgomery en grafísk hönnun var unnin af Matthew Proud.

Einstakt kortahjól

Í forritinu er einstakt, gagnvirkt viðmót þar sem leikmaður er áfram um slóðir brúðhjónanna. Frumlegt kortahjól sýnir framvindu dagskrár konunglega parsins, stund fyrir stund, á meðan á viðhöfninni stendur. Á sama tíma sést staðsetning notanda á kortinu, sé hann staddur í London, samtímis getur hann séð för brúðhjónanna á kortinu. Bent á hvar bestu útsýnisstaðirnir eru ásamt öðrum nauðsynlegum upplýsingar sem auðvelda skipulagningu þáttakenda í hátíðardagskránni.

Nýstárleg, gangvirk margmiðlun- innihald

Með frásögnum, texta og ljósmyndum, sem kynda undir ímyndunaraflið, er allt það sem leikmenn hafa áhuga á að vita um konunglega brúðkaupið kynnt til sögunnar; dagskrá, gestalisti, smáatriði, forsaga og ýmislegt fleira sem aðdáendur konungsfjölskyldunnar þyrstir í að vita.

Hér er meðal annars hægt að fræðast um menntun Kate og tískusmekk, lesa um hennar uppáhaldshönnuði, hárgreiðsu og förðun. Í forritinu er að finna frásagnir af hvernig parið kynntist og varð ástfangið, saga sambands þess er rakin. Sagðar eru sögur af fjölskyldum parsins og vinum jafnt og öðru lykilfólki eins og brúðarmeyjum, hringberum og erkibiskupnum af Canterbury.

Fjölskrúðug saga Westminster Abbey er rakin og hægt er að hlusta á þá tónlist sem leikin verður í athöfninni og á meðan hestvagninn flytur brúðhjóninn til Buckingham hallarinnar. Hér er að finna margvísleg smáatriði eins og leyndarmálið um brúðarvönd Kate, sögu giftingarhringsins og ýmislegt fleira sem gefur rétta stemningu og veitir heildstæða mynd af þessari hátíðlegu stund.

Þetta er persónuleg leiðsögn um allt sem tengist konunglega brúðkaupinu og er í senn fræðandi, vönduð, gangvirk og skemmtileg. Forritið er til sölu í netverslun Apple og kostar 1.99 dali.

Hægt er að skoða myndir frá forritinu á eftirfarandi síðu http://royalwedding.locatify.net/“