Microsoft hefur tilnefnt íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Annata í úrslitahóp um val á samstarfsaðila ársins á sviði hugbúnaðar fyrir bíla- og tækjaiðnað (e. Microsoft Automotive Partner of the Year 2021 finalist). Þetta kemur fram í tilkynningu.

Annata er tilnefnt til úrslita ásamt öðrum samstarfsaðilum Microsoft sem þykja hafa skarað fram úr á sviði nýsköpunar og þróun lausna sem byggja á tækni Microsoft. Félagið var valið úr hópi þúsunda samstarfsaðila Microsoft, sem margir hverjir eru á meðal stærstu fyrirtækja heims. Viðurkenningar eru veittar í nokkrum flokkum fyrir árangursríkt samstarf við Microsoft, nýsköpun, aukna ánægju viðskiptavina og fyrir að laða að nýja viðskiptavini.

„Það er okkur mikill heiður að vera valin í úrslitahóp Microsoft á samstarfsaðila ársins á sviði hugbúnaðar fyrir bíla- og tækjaiðnað. Fyrir tveimur árum vorum við valin alþjóðlegur samstarfsaðili ársins af Microsoft og það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með þeirri hröðu þróun sem hefur orðið frá þeim tíma.

Þessi hraða framþróun hefur átt sér stað vegna þeirrar pressu sem Covid-19 setti á stafræna umbreytingu fyrirtækja. Lausnir Annata hafa stutt við þróun nýrra viðskiptamódela sem byggja á sveigjanleika og sem gera fyrirtæki betur í stakk búin að takast á við áskoranir eins og Covid-19,“ segir Jóhann Jónsson, forstjóri Annata, í tilkynningunni.

Annata er hugbúnaðarfyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi. Frá stofnun fyrirtækisins hefur það lagt áherslu á þróun á lausnum byggðum á Microsoft Dynamics.