Íslensku viðskiptabankarnir og fjárfestingabankinn Straumur-Burðarás standast allir álagspróf Fjármálaeftirlitsins sem eftirlitið framkvæmir með reglubundnum hætti. Í frétt frá FME er haft eftir Jónasi Fr. Jónssyni, forstjóra FME, að niðurstaða álagsprófsins sýni að að undirstöður íslensku bankanna séu traustar og að eiginfjárstaða þeirra sé sterk.

Álagsprófið gerir ráð fyrir að fjármálafyrirtæki standist samtímis áföll í formi tiltekinnar lækkunar á hlutabréfum, markaðsskuldabréfum, vaxtafrystum/virðisrýrðum útlánum og fullnustueignum og áhrifa af lækkun á gengi íslensku krónunnar án þess að eiginfjárhlutfallið fari niður fyrir lögboðið lágmark. Til viðbótar hinu formlega álagsprófi framkvæmir Fjármálaeftirlitið ýmis álagspróf eftir því sem ástæða þykir til. Unnið er að endurskoðun viðmiða sem beitt er í álagsprófinu og aðferðafræði í því sambandi, m.a. með hliðsjón að kröfum sem gerðar eru samkvæmt alþjóðlegum eiginfjárreglum (Basel II).

Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME, segir niðurstöðu álagsprófsins sýna að að undirstöður íslensku bankanna séu traustar og að eiginfjárstaða þeirra sé sterk. ,,Þessar niðurstöður sýna að bankarnir geta staðist veruleg áföll. Þá voru rekstrarniðurstöður þeirra á fyrri helmingi ársins góðar, jafnvel þó eingöngu sé litið til arðsemi eiginfjár án gengishagnaðar og óreglulegra tekna þá var hún á bilinu 15%-19% sem verður að teljast vel viðunandi". Jónas segir þessa sterku stöðu mikilvæga í ljósi þess umróts sem verið hefur á alþjóðlegum fjármálamörkuðum í kjölfar vandræða á bandarískum húsnæðislánamarkaði. ,,Þau gögn sem við höfum aflað sýna að áhætta tengd bandarískum fjármálagerningum af þessu tagi eru takmörkuð hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum eða um 3% af eiginfjárgrunni þeirra. Engu að síður sýnir órói síðustu vikna mikilvægi þess að fjármálafyrirtæki hugi vel að eignagæðum? segir Jónas.