Farþegum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júlí stóð til boða um það bil hundrað áætlunarferðir með 25 flugfélögum. Í umfjöllun ferðamiðlsins Túrista er bent á að það séu um fimmtungi fleiri brottfari en í júlí í fyrra. Erlendum flugfélögum sem fljúga frá Leifsstöð hefur einnig fjölgað á milli ára en það hefur ekki breytt því að staða Icelandair og Wow air á flugvellinum er gífurlega sterk. Íslensku félögin tvö stóðu áfram fyrir þremur af hverjum fjórum ferðum frá landinu í júlí líkt og á sama tíma í fyrra.

Aukin umsvif á flugvellinum voru að miklu leyti vegna aukinna umsvifa íslensku félaganna tveggja. Það þriðja, Air Iceland Connect, hefur sömuleiðis bætt við ferðir sínar frá Keflavíkurflugvelli. Innbyrðis vægi Icelandair og Wow air hefur þó tekið nokkrum breytingum á milli ára. Í júlí árið 2015 var Icelandair með tvær af hverjum þremur ferðum og Wow air með 16 prósent. Í júlí á þessu ári er staðan aftur á móti sú að vægi flugáætlunar Icelandair er einmitt helmingur en Wow air er með fjórðung ferða.