Einstök Icelandic Doppelbock jólabjórinn er nú til sölu í skemmtigarðinum Disney’s Hollywood Studios í Florida. Er hann eini jólabjórinn sem Disney fyrirtækið býður til sölu á veitingastöðum í skemmtigarðinum.

Einstök bjór hefur verið í mikilli sókn á þeim þremur árum sem liðin eru frá því að hann kom fyrst á markað. Í ár yfirgefa yfir 100.000 kassar af þessum akureyska bjór landsteinana, en magnið hefur rúmlega tvöfaldast á hverju ári.

Doppelbock er þó ekki eini Einstök bjórinn sem þau hjá Disney eru hrifin af. Nýverið skipti Disney Bud Light bjórnum, sem lengi hefur verið meðal mest seldu bjóra í Bandaríkjunum, út fyrir Einstök White Ale í öllum bjórsöluvögnum í Norska skálanum í Epcot Center. Einstök bjórarnir eru að auki fáanlegir í fjölmörgum veitingastöðum og hótelum á vegum Disney á svæðinu.

Árlega sækja ríflega 10 milljónir manna skemmtigarðinn í Flórída heim sem gerir hann að áttunda vinsælasta skemmtigarði sinnar tegundar í heiminum.