Erla Skúladóttir, stjórnarformaður Lauf Forks, sem hannar og framleiðir léttasta demparahjólagaffal í heimi, hefur gengið frá fyrsta framleiðendasamningi sínum í Bandaríkjunum. Kom þetta fram í máli hennar í tjaldi atvinnulífsins á fundi fólksins, sem fram fer um helgina.

Um er að ræða Borealis bikes, leiðandi framleiðanda á svokölluðum Fat Bike – hjólum.

Íslenski hjólagaffallinn verður í boði hjá Borealis frá og með ágúst.