Íslenski tölvuleikurinn Aaru's Awakening mun koma út á Playstation 3 og Playstation 4. Þetta tilkynnti japanski leikjatölvuframleiðandinn Sony nú fyrir helgi. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að leikurinn sé svokallaður tvívíður hopp og skopp leikur í anda Super Mario Bros. leikjanna. Þetta kemur fram í frétt á vef Vísis .

„Það sem gerir hann öðruvísi eru eiginleikar aðalpersónu leiksins, Aaru - en hann getur fjarflutt sig með því að skjóta sál sinni úr líkama sínum,“ segir þar einnig. Allar myndirnar í leiknum eru handteiknaðar. Sony tilkynnti einnig að fyrirtækið hyggðist kynna leikinn í vikunni á einni stærstu sýningu skemmtanabransans, E3, í Los Angeles. Ríflega 50 þúsund manns mæta á hátíðina á hverju ári.

Það er því ljóst að íslenski tölvuleikjaframleiðandinn Lumenox hefur nú aðgang að stórum viðskiptavinahópi, en þeir voru nýlega samþykktir inn á leikjaveituna Steam en notendur hennar eru um 75 milljón talsins. Lumenox, sem staðsett er í Hafnafirði, leggur um þessar mundir lokahönd á leikinn sem kemur út í sumar en þeir hafa unnið að leiknum síðastliðin tvö ár.

Hér fyrir niðan má sjá stikluna sem Sony gaf út samhliða tilkynningu sinni, en hún útskýrir betur hvernig leikurinn virkar.