Íslenskur tölvuleikur sem er þróaður og hannaður í sameiningu af On The Rocks Productions og CAOZ kom í iTunes verslun Apple tveim dögum fyrir jól. Leikurinn er byggður á sögu úr væntanlegri kvikmynd CAOZ um þrumuguðinn Þór. Leikurinn er gefinn út af bandaríska fyrirtækinu Freeverse sem m.a. hefur sett á markað í iTunes verslunni tvo af 10 söluhæstu leikjum Apple-verslunarinnar frá upphafi.

Í tilkynningu segir að leikurinn hefur fengið mjög góðar viðtökur hjá þeim notendum sem hafa gefið honum góða einkunn. Leikurinn er þegar kominn á listann yfir 40 tekjuhæstu ævintýraleikina í verslun Apple, auk þess sem hann er á lista yfir nýja leiki sem þykja athyglisverðir að mati verslunarinnar.

Leikurinn var í vinnslu í tæpt ár hjá On the rocks sem sjá um leikskipulag, verkefnastjórn og forritun í samstarfi við Three Melons. CAOZ sá um alla myndvinnslu og hreyfimyndir í leikinn en útlit hans hefur vakið mikla athygli í þeirri umfjöllun sem birst hefur um hann. Leikurinn er unnin sérstaklega fyrir iPhone og iTouch frá Apple.

Í leiknum leiðir leikmaðurinn Þór í gegnum þautir í mannheimum, jötunheimum og undirheimum þar sem Þór þarf meðal annars að sigra Þrym – konung jötna, og hina illu Hel – drottningu undirheimanna. Leikmaðurinn safnar stigum og leysir þrautir á leið sinni til að bjarga mannheimum frá illum örlögum. Auk þess er hægt að leysa sérstakar þrautir og vinna auka líf, fatist leikmanni flugið á leið sinni í gegnum leikinn. Hægt er að vera með allt að 4 notendur skráða í leiknum og geta því vinir og fjölskyldur reynt með sér í leiknum.

Fyrstu dómar sem birst hafa um leikinn hafa jafnframt verið mjög jákvæðir. “Listræn framsetning er frábær og jafnvel þó að leikaðferðin sé einföld, hafði ég mjög gaman að spila Þór” skrifar gagnrýnandi á Touch Arcade síðunni sem fjallar eingöngu um iPhone leiki.

“Það er frábært að fá svona góðar viðtökur strax og er mikilvægt fyrir frekari kynningu á leiknum og vonandi enn betri árangurs og sölu” segir Pétur Sigurðsson, framkvæmdastjóri On the Rocks Productions í tilkynningu.

Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri CAOZ segir leikinn mjög gott dæmi um það hvernig íslensku hugviti, skapandi listum og tækni sé teflt saman á árangursríkan máta. “Fyrir okkur er þetta líka enn ein sönnun þess hvað sagnaarfurinn okkar er frábær uppspretta nýrra hugmynda og á svo sannarlega erindi við nútímann”, bætir Hilmar við í tilkynningu.