Hvergi í Evrópu starfar jafnhátt hlutfall vinnandi fólks í íþróttaiðnaðinum og á Íslandi, eða 2%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunar . Af þeim 10 löndum þar sem íþróttageirinn er hlutfallslega stærstur eiga fimm lönd sæti á heimsmeistarakeppninni í fótbolta ásamt Íslandi, en þau eru Svíþjóð, Bretland, Spánn, Danmörk og Portúgal. Króatía er með fimmta lægsta hlutfallið af Evrópulöndunum.

Störfum í íþróttageiranum hefur fjölgað í Evrópu frá árinu 2011, mest í Slóvakíu, Ungverjalandi, Portúgal og Eistlandi þar sem árlegur vöxtur fór yfir 10%. Þá hefur störfum í íþróttaiðnaði fjölgað meira en störfum á vinnumarkaði í heild víðast hvar í Evrópusambandinu, en hlutfallið jókst að meðaltali úr 0,7% árið 2011 í 0,8% árið 2016. Á Íslandi hefur störfum í íþróttaiðnaði ekki fjölgað meir en á vinnumarkaði almennt og hlutfallið því haldist stöðugt við 2%.