Ívar Páll Jónsson hefur verið ráðinn sérfræðingur á samskiptasviði hjá Landsvirkjun. Hann hefur að undanförnu starfað fyrir Eykon Energy, en auk þess setti hann upp söngleik síðasta sumar í New York í Bandaríkjunum.

Þar áður starfaði Ívar Páll sem viðskiptaritstjóri Morgunblaðsins og var einnig um skeið blaðamaður á Viðskiptablaðinu.

Ívar Páll er með BA-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands.