Ívar Þór Axelsson hefur snúið aftur til starfa hjá Kerecis ehf. þar sem hann starfaði á árunum 2010 - 2011. Kerecis er íslenskt lækningavörufyrirtæki sem þróar, framleiðir og markaðssetur vörur til meðhöndlunar á sköðuðum líkamsvef og húð. Kemur þetta fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Ívar mun sinna starfi verkefnastjóra í viðskiptaþróun bæði á Íslandi og erlendis. Ívar er frumulíffræðingur að mennt frá Heilbrigðisvísindasviði Læknadeildar og hefur undanfarið ár starfað á Kerfislíffræðisetri Háskóla Íslands. Ívar er kvæntur Guðrúnu Misti Sigfúsdóttur lögfræðingi og eiga þau eitt barn.