Já hefur gert samning við eigendur Gallup um kaup á öllum hlutabréfum í fyrirtækinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að með kaupunum sé lagður grunnur að einu öflugasta upplýsingafyrirtæki landsins. Heildarvelta Já muni eftir kaupin verða um 1,7 milljarðar króna og fjöldi starfsmanna um eitt hundrað.

„Við förum í þetta verkefni fullviss um að viðskiptavinir Já og Gallup njóti góðs af, það er mikil sérfræðiþekking innan beggja félaga og áfram verður lögð áhersla á upplýsingaþjónustu sem byggir á nýjustu tækni. Bæði fyrirtækin eru upplýsingafyrirtæki þó þau starfi á ólíkum mörkuðum, kaupin auka fjölbreytni í rekstri Já og gera starfsumhverfið áhugaverðara og fjölbreyttara,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já.

„Þetta er stórt skref fram á við fyrir starfsemi og starfsmenn Gallup. Umhverfi fyrirtækja er síbreytilegt og ekki síst ef litið er til tækni og þróunar sem átt hefur séð stað í upplýsingageiranum. Með kaupum Já er Gallup orðið hluti af sterku fyrirtæki með skýrar áherslur á rannsóknir og upplýsingar. Það gerir okkur kleift að þjónusta okkar viðskiptavini enn betur og áfram munum við kappkosta við að veita þjóðinni innsýn í mál líðandi stundar,“ segir Einar Einarsson, framkvæmdastjóri Gallup.