Upplýsingafyrirtækið Já hefur ákveðið að loka þjónustuverinu sínu í Reykjanesbæ frá og með 1. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu fra félaginu. Undanfarin ár hefur stöðugildum þjónustufulltrúa fækkað jafnt og þétt samhliði aukinni notkun á stafrænum miðlum sem eru ókeypis fyrir neytendur, segir í tilkynningunni. Stöðugildum þjónustufulltrúa fækkar um 6-7 en fram kemur að á sama tíma hefur átt sér stað fjölgun á sérfræðistörfum hjá fyrirtækinu.

„Þetta eru sársaukafullar aðgerðir, bæði að þurfa að fækka í starfsliðinu og ekki síður að loka þjónustuverinu í Reykjanesbæ. Þar höfum við haft öfluga starfsstöð og gott fólk.” segir Lilja Hallbjörnsdóttir, þjónustustjóri Já.