Árið 2014 flugu yfir 130 þúsund flugvélar 186 milljónir kílómetra um íslenska flugstjórnarsvæðið. Þetta jafnast á við 4.644 ferðir umhverfis jörðina. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Isavia, en gefin hefur verið út ítarleg greining fyrirtækisins á umferð ársins um flugvelli landsins og íslenska flugstjórnarsvæðið.

20% fleiri millilandafarþegar

Á árinu sem leið fjölgaði millilandafarþegum um flugvelli Isavia um 19,9% miðað við árið 2013 en innanlandsfarþegum fækkaði um 2,8% á sama tímabili. Farþegafjöldi á Keflavíkurflugvelli var alls 3.867.418 sem er 20,5% aukning frá fyrra ári. Umfang vöru- og póstflutninga minnkaði um 1,5% innanlands en jókst um 1,3% milli landa.

Aukin umferð um íslenska flugstjórnarsvæðið

Alls fóru 130.856 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið á árinu 2014 eða 12,5% fleiri en árið áður. Flognir kílómetrar voru 11,1% fleiri á sama tímabili. Um 64% umferðarinnar var á vesturleið og 36% á austurleið sem stafar af ríkjandi vindáttum á svæðinu. Mikill hluti þessarar umferðar er á milli Evrópu og Norður-Ameríku, en um íslenska svæðið fer um 25% þeirrar flugumferðar.

Algengasta leiðin innan flugstjórnarsvæðisins var sem fyrr frá London til Los Angeles en 2.181 ferðir voru farnar þá leið á árinu. 1,980 ferðir voru farnar frá London til Keflavíkur og 1,949 frá Keflavík til London. Þau sjö flugfélög sem flugu oftast um íslenska svæðið eru Icelandair, United Airlines, Delta, British Airways, Lufthansa, Emirates og SAS.