Kaupmáttur hjóna með meðaltekjur jókst um 450 þúsund krónur eftir skatt á árinu 2013, en það samsvarar rúmlega þriggja mánaða matarútgjöldum heimilis. Þetta segja Samtök atvinnulífsins í umfjöllun á vefsíðu sinni.

„Á rúmlega einu ári hefur kaupmáttur launa aukist umtalsvert og verðbólga hrapað niður í sögulegar lægðir. Þetta er ekki tilviljun því að þessu var stefnt við undirritun kjarasamninga í desember 2013 en árangurinn er framar vonum,“ segir í umfjölluninni.

Samtökin segja kaupmátt launa hafa aukist um 5,7% á síðasta ári sem sé mesta hækkun á einu ári frá árinu 1998. Ársverðbólga hafi mælst aðeins 0,8% í lok síðasta árs.

„Ávinningur heimilanna af þróun undanfarinna mánaða er mikill. Kaupmáttur einstaklings með meðaltekjur jókst t.d. um 225 þúsund krónur eftir skatt á árinu 2013 eða um 19 þúsund krónur á mánuði.“

Búið að aftengja verðtrygginguna

Fram kemur að það skipti miklu fyrir heimilin að verðbólga sé lítil þar sem þrír fjórðungshluta skulda þeirra séu verðtryggð lán. Fyrir heimili með meðalskuldir, um 20 milljónir króna, sé ávinningur lækkunar verðbólgu árið 2014 miðað við árið á undan rúmlega hálf milljón króna. Þó hafi verðbólgan árið 2013 verið lítil í sögulegu samhengi en tryggja megi enn betri árangur verði haldið áfram á sömu braut.

„Segja má að búið sé að aftengja verðtrygginguna um þessar mundir. Verði það ástand viðvarandi geta vextir lækkað á Íslandi sem eru allt of háir og íþyngjandi fyrir bæði fyrirtæki og heimili,“ segir að lokum í umfjöllun samtakanna.