Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur ákveðið að fresta fyrirhuguðu jafnréttisþingi, sem halda átti samkvæmt nýjum jafnréttislögum hinn 7. nóvember næstkomandi, fram í janúar á næsta ári.

Þetta kemur fram á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins.

Þar kemur fram að ástæðan fyrir frestuninni er sú að þinginu er ætlað að höfða til stjórnenda í fyrirtækjum og stofnunum, stjórnmálamanna, fulltrúa frjálsra félagasamtaka og almennings.

„Ráðuneytinu þykir líkur benda til þess að jafnréttisþingið nái ekki markmiðum sínum í því óvissuástandi sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar þar sem fjölmargir þeirra sem ráðuneytið vill virkja þar til umræðu eru núna bundnir dag og nótt við að ráða fram úr aðkallandi úrlausnarefnum sem tengjast þeim sérstöku aðstæðum sem ríkja á fjármálamarkaði,“ segir á vef ráðuneytisins.