Í nýrri skýrslu frá franska bankanum BNP Paribas er varað við vaxandi spennu innan evrusvæðisins á milli norður- og suðurhluta þess.

Í skýrslunni segir m.a. að slakt efnahagsástand í suðurhluta evrusvæðisins undanfarinn áratug hafi gert það að verkum að hann sé ekki samkeppnishæfur við norðurhlutann.

Uppsveifla á húsnæðismörkuðum vegna lágra stýrivaxta hafi til þessa falið vandann en fyrir vikið hafi vandamálin hrannast upp. Ertu Spánn og Ítalía sérstaklega nefnd í þessu sambandi. Frá þessu var greint í breska dagblaðinu Daily Telegraph í gær.

„Þó hægt sé að fela spennuna í efnahagsuppsveiflu mun hún leita upp á yfirborðið í niðursveiflu. Það er engin tilviljun að öll misheppnuð myntbandalög hafa verið lögð niður á tímum spennu í efnahagslífinu,” segir í skýrslunni sem ber heitið 'EMU Concerns'.

Bankinn segir að miðstýrt peningamálakerfi evrusvæðisins sé ótraust í grundvallaratriðum en gekk ekki svo langt að spá því að svæðið myndi líða undir lok. Peningamálastefna evrusvæðinsins gæti ekki leyst úr málum eins og staðan væri nú og myndi aðeins gera þau erfiðari viðfangs.

„Því meira sem hagkerfin þróast í mismunandi áttir, því óhagstæðari verður peningamálstefnan. Það sem kann að vera of þröngt fyrir suma kann að vera of vítt fyrir aðra innan Myntbandalags Evrópu sem aftur leiðir til þess að mismunurinn á milli hagkerfa eykst enn meira,” segir ennfremur í skýrslunni.

Fram kemur í frétt Daily Telegraph að enginn banki á evrusvæðinu hafi spáð endalokum evrusvæðisins en hins vegar hafi bankar utan þess velt þeim möguleika fyrir sér t.a.m. breski bankinn HSBC og bandaríski fjárfestingabankinn Morgan Stanley.