YZ Creation er hluti af Startup Reykjavík og mun fyrirtækið kynna hugmynd sína á fjárfestadegi sem haldinn verður í Arion banka á föstudaginn. Fatnaðurinn er sérstakur að því leyti að hægt er að taka hluta af flíkinni og bæta öðrum við. Til dæmis getur venjulegur leðurjakki breyst í kjól með loðkraga á skotstundu.

Bakvið YZ Creation standa Viktor Sigurjónsson, Harpa Einarsdótir, Ýr Þrastardóttir og Hrefna Björk Sverrisdóttir.