Jakobi F. Ásgeirssyni býður sig fram í 5. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í nóvember. Hann segist hafa verið óspart hvattur til að þess af sjálfstæðisfólki að bjóða sig fram.

Jakob F. Ásgeirsson er B.A. í stjórnmálafræði, hagfræði og heimspeki (PPE) og M.Lit. í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla. Hann hefur unnið við blaðamennsku og útgáfustarfsemi og skrifað tíu bækur. Undanfarin átta ár hefur hann rekið eigið útgáfufyrirtæki, Uglu, og ritstýrt tímaritinu Þjóðmálum sem kemur út fjórum sinnum á ári.

Í tilkynningu frá Jakobi segir:

„Ég hef stutt Sjálfstæðisflokkinn og frjálslynd hægri viðhorf með blaðaskrifum og útgáfu bóka um langt skeið. Erindi mitt í stjórnmál er fyrst og fremst að berjast af krafti fyrir slíkum viðhorfum — hinum gömlu og góðu gildum sjálfstæðisstefnunnar. Sjaldan hefur verið ríkari þörf á því en nú að treysta frelsi einstaklingsins, stuðla að frjálsu og öflugu atvinnulífi og standa vörð um sjálfstæði landsins.“