Eigendur 19,64% hlutar í Hraðfrystihúsinu Gunnvör í Hnífsdal hafa selt hlut sinn í félaginu. Kaupandi er Jakob Valgeir ehf., sem rekur hundrað manna útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í Bolungarvík. Þetta kemur fram í tilkynningu, en söluverð hlutarins er trúnaðarmál.

Hraðfrystihúsið Gunnvör rekur frystitogara, ísfiskskip, innfjarðarrækjubáta, fiskvinnslu í landi og fiskeldisstarfsemi gegnum dótturfélag. Um 130 manns starfa hjá fyrirtækinu. 

Seljendur hlutarins eru systkinin Guðmundur, Kristinn Þórir, Ólöf Jóna og Steinar Örn Kristjánsbörn. Í tilkynningu seir að hluturinn hafi verið í eigu fjölskyldunnar í áratugi.

Kristinn Þórir Kristjánsson, talsmaður seljendanna:

"Það skiptir okkur miklu máli að reksturinn í Hnífsdal sé traustur og fyrirtækið verði áfram hornsteinn í atvinnulífinu á staðnum. Við þekkjum Jakob Valgeir af góðu einu, vitum að hann hefur sterkar taugar til svæðisins og skilur tækifærin sem felast í rekstri félagsins í Hnífsdal."

Jakob Valgeir Flosason, framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf.:

"Það er spennandi verkefni að fylgja þessu sögufræga fyrirtæki inn í framtíðina. Reksturinn hefur gengið vel og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum, svo félagið haldi áfram að vaxa og dafna ásamt samfélaginu sem það starfar í. Ég hef mikla trú á þessari fjárfestingu og framtíð félagsins.“