Flaga Group [ FLAGA ] tilkynnti á aðalfundi félagsins í dag að bráðabirgðatölur gæfu til kynna að fyrsti ársfjórðungur ársins 2008 yrði sá tekjuhæsti í sögu félagsins, að sögn Greiningardeildar Landsbankans.

„Gengi Flögu hækkaði snögglega rétt eftir miðjan janúar en hefur eftir það lækkað nokkuð og nemur árslækkun gengis þess nú 14%. Í dag hækkaði gengið þó um 1,4%," segir Greiningardeildin.