Frá fyrri mánuði jókst fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í júlí um 26,6% og um rúm 50% miðað við júlí í fyrra. Heildarfjöldi kaupsamninga í júlí var 281. Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, segir að aukninguna megi að einhverju leyti rekja til dóms Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra bílalána.
„Við fundum fyrir mikilli aukningu í eftirspurn eftir fasteignaviðskiptum vikuna eftir dóminn og margir hringdu í Félag fasteignasala. Við fundum að dómurinn hafði jákvæð áhrif og fólk hefur beðið lengi eftir að geta stundað viðskipti,“ segir Grétar.
Hann segir að jákvæðar fréttir hafi mikil áhrif á fasteignamarkaðinn en vegna óvissunar í kjölfar dómsins sé markaðurinn líklegast enn og aftur kominn í biðstöðu. „Ég tel að aukning kaupsamninga hefði orðið enn meiri ef óvissu vegna dómanna gætti ekki.“