Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 49,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 39,1 milljarð króna á fob-virði.

Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 10,6 milljarða króna samkvæmt tölum Hagstofunnar. Í september 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 9,5 milljarða króna á sama gengi

Jákvæð vöruskipti um 90 milljarða

Fyrstu níu mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 415,8 milljarða króna en inn fyrir 327,2 milljarða króna fob. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 88,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 63,0 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 25,6 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Fyrstu níu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 51,3 milljörðum eða 14,1% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,3% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 55,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 36,3% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í  útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Fyrstu níu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 25,7 milljörðum eða 8,5% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.