Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hefur breytt horfum í mati sínu á lánshæfi Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í jákvæðar úr stöðugum. Einkunnin er áfram Ba2.

Í tilkynningu frá Moody's segir að ástæða þess að horfur séu betri hjá fyrirtækinu sé meðal annars batnandi rekstrarafkoma, lækkandi skuldir og sterkari lausafjárstaða síðustu ár. Þá séu auknar líkur á því að OR standist kröfur um hærri lánshæfiseinkunn í náinni framtím. Enn fremur kemur fram að fjárhagur OR hafi styrkst og vísað er til „Plansins“ svokallaða sem sett var af stað árið 2011.

„Mikil staðfesta stjórnenda við að fylgja því eftir leiddi til þess að markmiðum þess var náð talsvert áður en því lauk, í árslok 2016. Matsfyrirtækið á von á því að OR sýni áfram skynsemi í fjár- og áhættustýringu sem gefi fyrirtækinu gleggri sýn á fjármálin og geti gert OR kleift að draga úr áhættu vegna þróunar vaxta, gengis og álverðs,“ segir í fréttatilkynningu frá OR.