Skilanefnd Kaupþings banka hélt í dag sinn fyrsta fund með fulltrúum stórra kröfuhafa bankans (óformlegri nefnd kröfuhafa).

Í fréttatilkynningu frá Kaupþingi segir að á fundinum hafi farið fram jákvæðar umræður um stöðu mála og  gert sé ráð fyrir því að næsti fundur verði haldinn innan mánaðar.

Skilanefnd bankans væntir góðs samstarfs við kröfuhafanefndina í því verkefni að hámarka verðmæti eigna fallra hlutaðeigandi.