James Murdoch, framkvæmdastjóri Fox News og sonur Rupert Murdoch, sem er eigandi News Corp, mun nú taka við starfi stjórnarformanns fjölmiðlarisans Sky.

Fyrir fjórum árum var hann stjórnarformaður BSkyB, en eftir að News Corp, fyrirtæki föður hans, mistókst að taka fyrirtækið yfir, sagði hann sig frá störfum.

Kvikmyndaframleiðandinn Fox, hvers James er framkvæmdastjóri, fer með 39% eignarhlutdeild í Sky. Ekki er ómögulegt að stjórnarformannsseta hans sé önnur tilraun til yfirtöku á Sky-samsteypunni.