Hagnaður Jane Norman verslananna, sem eru í eigu Baugs Group, jókst um þriðjung á árinu. Opnaðar verða 30 nýjar verslanir á næstu fjórum árum í Miðausturlöndum. Um síðustu jól voru opnaðar tvær verslanir undir merkjum Jane Norman í Dubai í Mall of the Emirates og Deira City Centre.

Alls eru nú starfræktar um 130 verslanir undir merkjum Jane Norman.

Ian Findley, fjármálastjóri fyrirtækisins, segir að fyrirséð sé mikil aukning hagnaðar af starfseminni í Bretlandi. Á síðasta fjárhagsári, sem endaði 31. mars sl., nam salan 132,6 milljónum punda í samanburði við 97,3 milljónir punda á fyrra fjárhagsári. EBITDA var 30,1 milljón punda. Findley sagði að stefnt væri að "hófsamri" aukningu hagnaðar á þessu ári.