Janne Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, mun taka við starfi forstöðumanns upplýsingatæknimála (e. Chief Information Officer) hjá Alcoa á heimsvísu. Hún mun í nýju starfi bera ábyrgð á upplýsingatæknistefnu fyrirtækisins og öryggi net- og tölvukerfa innan Alcoa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Magnús Þór Ásmundsson mun taka við starfi forstjóra Alcoa Fjarðaáls af Janne. Hann hefur gegnt starfi forstjóra Alcoa á Íslandi frá 2012 og mun áfram sinna þeim skyldum en bætir við sig nýju hlutverki sem forstjóri Fjarðaáls. Breytingin tekur gildi 1. nóvember.

Janne er dönsk að uppruna, fædd í Álaborg í Danmörku árið 1966. Hún útskrifaðist 1995 sem cand scient í stærðfræði og tölvunarfræði frá Háskólanum í Álaborg. Janne hóf starfsferilinn hjá álverinu sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni. Fáum mánuðum síðar varð hún framkvæmdastjóri framleiðsluþróunar og framkvæmdastjóri kerskála var hún frá 2008 til 2010. Hún varð framkvæmdastjóri framleiðslu í apríl 2010 og forstjóri Alcoa Fjarðaáls árið 2012.

Janne á sæti í Samráðsvettvangi um aukna hagsæld á Íslandi og situr í stjórn AMS (Samvinna álfyritækja á Norðurlöndunum vegna umhverfis-, heilsu- og öryggissmála). Janne er gift Magnúsi Sigurðssyni, múrara frá Eskifirði, og eiga þau tvö börn, Tennu Elísabetu og Ásbjörn Víking. Ný starfstöð Janne verður í Pittsburgh í Bandaríkjunum.

Magnús Þór er rafmagnsverkfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og M.Sc. frá Danmarks Tekniske Universitet. Magnús, sem starfað hefur hjá Fjarðaáli frá 2009. Magnús hóf störf hjá Fjarðaáli sem framkvæmdatjóri framleiðsluþróunar og varð síðan einnig framkvæmdastjóri skautsmiðju árið 2011. Frá árinu 2012 hefur hann jafnframt verið forstjóri Alcoa á Íslandi. Magnús er í stjórn Samáls og Tækniskólans en áður hefur hann átt sæti í stjórn Viðskiptaráðs og háskólaráðs Háskólans í Reykjavík. Magnús Þór er kvæntur Soffíu G. Brandsdóttur snyrtifræðingi og eiga þau þrjú börn, Sunnu Maríu, Ásmund Hrafn og Sveinbjörn Fróða.