Japan Tobacco mun hafa komið að máli við breska tóbaksframleiðandann Gallaher Group varðandi mögulega yfirtöku á fyrirtækinu, sem metið er á 870 milljarða króna. Gallaher hefur lýst því yfir að viðræður séu hafnar, sem séu þó á grunnstigi, en Gallaher vildi ekki nafngreina aðilann opinberlega.

Japan Tobacco er þriðji stærsti tóbaksframleiðandi heims, miðað við tekjur. Fyrirtækin hafa starfað saman áður, en Gallaher sér um markaðssetningu Camel-merkisins, sem Japan Tobacco framleiðir, í Bretlandi og Austurríki. Japan Tobacco hefur verið að berjast við minnkandi tóbakssölu á heimamarkaði og leitast við að stækka við sig á alþjóðavettvangi, en fyrirtækið keypti bandarísku tóbakseininguna RJR Reynolds International fyrir 540 milljarða króna árið 1999.