Ákvörðun Japansbanka að halda stýrivöxtum óbreyttum kom engum á óvart. Bankinn lækkaði jafnframt hagvaxtarspá sína og vísaði til niðursveiflu á fasteignamarkaði.
Japansbanki lækkaði hagvaxtarspá sína í fyrsta skipti í þrjú ár samhliða ákvörðun bankans að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5%, sem var í samræmi við væntingar greinenda. Sérfræðingar segja að þetta gefi til kynna að enn sé nokkur tími þangað til Japansbanki verði reiðubúinn að hækka stýrivexti.
Framtíðarsamningar sýna að fjárfestar telja yfir 20% líkur að stýrivextir verði ekki hækkaðir næst fyrr en í september á næsta ári, en flestir veðja á vaxtahækkun í maímánuði. Japansbanki hækkaði síðast vexti um 25 punkta í febrúar á þessu ári.
Nánar er fjallað um þetta í Viðskiptablaðinu um helgina. Áskrifendur geta nálgast blaðið á pdf skjali hér á vb.is. Þeir sem ekki hafa slíkan aðgang geta sótt um hann með því að senda tölvupóst á [email protected] .