Eftir að yfirtöku Atorku hf. til hluthafa í Jarðborunum lauk uppfyllir félagið ekki lengur skilyrði um dreifingu hlutafjár og verður því samkvæmt reglum afskráð af aðallista Kauphallar Íslands.
Samkvæmt tilkynningu frá Kauphöll Íslands var beiðni um afskráninguna samþykkt í dag og mun taka gildi eftir lokun viðskipta mánudaginn 30. janúar 2006.