Jarðboranir hf. hafa undirritað samning um sölu á dótturfélagi sínu, Einingaverksmiðjunni ehf. Kaupin eru háð skilyrði um áreiðanleikakönnun sem áætlað er að ljúki eigi síðar en 8. september n.k. Hagnaður félagsins vegna sölunnar verður að óbreyttu um kr. 100.000.000,-. Viðskipti þessi munu hafa óveruleg áhrif á afkomu Jarðborana hf. segir í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.