Jarðboranir
Jarðboranir
Miðengi ehf., eigandi alls hlutafjár í Jarðborunum hf., hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf.  að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á allt að 100% hlut í Jarðborunum hf., sem er eitt stærsta fyrirtæki heims á sviði jarðhitaborana. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Miðengi.

Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum auk aðila sem búa yfir fullnægjandi þekkingu og reynslu og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 500 milljónir króna. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, m.a. í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.

Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka.