Lögmennirnir Árni Helgason, Jóhannes Árnason og Sverrir B. Pálmason hafa ákveðið að endurvekja JÁS Lögmenn og flutt í nýja skrifstofu að Skólavörðustíg 3.

Með þessum flutningi lýkur samstarfi þremenninganna við lögmannsstofuna Cato, en þeir voru meðal stofnenda árið 2011. Árni segir að vilji JÁS Lögmanna hafi staðið til að kaupa eigið húsnæði en þegar stofan byrjaði árið 2009 var hún við Klapparstíg. Árni segir miðbæinn hafi togað í þá og þakkar gott samstarf á Cato.