Tvær konur á fertugsaldri voru handteknar fyrir helgina í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tilraun til að kúga fé af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, forsætisráðherra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Þar segir að konurnar hafi verið handteknar í Hafnarfirði um hádegisbil á föstudag. „Þær eru grunaðar um að hafa sent bréf í pósti heim til forsætisráðherra og krafist þess að hann greiddi þeim tiltekna fjárupphæð. Enn fremur var tilgreint að fjármunina ætti að skilja eftir á ákveðnum stað sunnan Vallahverfis í Hafnarfirði. Þar handtók lögregla konurnar.

Við yfirheyrslur játuðu konurnar að hafa sent umrætt bréf og var þeim sleppt að yfirheyrslum loknum. Málið hefur verið rannsakað og unnið í góðri samvinnu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og embættis ríkislögreglustjóra. Málið telst að mestu upplýst en að lokinni rannsókn verður það sent til ríkissaksóknara, sem tekur ákvörðun um næstu skref,“ segir í tilkynningunni.

Vísir greindi fyrst frá málinu í morgun. Þar er greint frá því að konurnar sem um ræði séu Hlín Einarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Bleikt.is, og Malín Brand, blaðamaður á Morgunblaðinu.