Jenið hefur styrkst gagnvart 16 helstu viðmiðunnar gjaldmiðlum sínum eftir lækkun verðbréfa á heimsmarkaði í kjölfar yfirlýsingar af fundi sjö helstu iðnríkja heims um metverð á olíu og áframhaldandi hægagangs á markaði í Bandaríkjunum. Hækkun jensins er sú mesta gagnvart Bandaríkjadal í sex vikur.