Jenný Ruth Hrafnsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Barnasmiðjunnar ehf.  Jenný er vélaverkfræðingur, menntuð á Íslandi og í Þýskalandi, auk þess að búa yfir 5 ára reynslu í vöruþróun og vörustjórnun hjá Össuri haf.  Með þessum breytingum vill stjórn Barnasmiðjunnar stuðla að frekari vexti í sölu - og markaðsstarfi á íslenskri framleiðslulínu fyrirtækisins undir vörumerkinu Krumma-Gull segir í tilkynningu.

Fráfarandi framkvæmdastjóri, Elín Ágústsdóttir verður áfram starfandi stjórnarmaður sem sölu-og markaðsstjóri.  Barnsmiðjan er eftir sem áður einkahlutafélag stofnenda þess.