Jens Þórðarson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Jens tók við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs í janúar 2018 eftir að hafa starfað sem framkvæmdastjóri tæknisviðs Icelandair frá árinu 2011. Hann hóf störf hjá félaginu 2006 og starfaði fyrstu árin meðal annars sem forstöðumaður fjármála og rekstrar á tæknisviði Icelandair og sem forstöðumaður varahluta- og innkaupadeildar.

Hann mun starfa áfram hjá félaginu næstu vikur eða þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra rekstrarsviðs.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group hf:

„Ég þakka Jens fyrir frábær störf í þágu félagsins á undanförnum árum en hann hefur meðal annars leitt mikilvægar umbætur á sviði flugrekstrar í gegnum krefjandi tíma. Um leið og ég þakka honum fyrir gott samstarf, óska ég honum velfarnaðar í framtíðinni."

Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair Group hf.:

„Ég er afar þakklátur og stoltur af þeim 15 árum sem ég hef notið þess tækifæris að vinna fyrir Icelandair Group í fjölbreyttum verkefnum með frábærum samstarfsfélögum. Eftir árangursríkan feril hingað til hef ég ákveðið að skipta um stefnu og leita á önnur mið. Icelandair Group er sigurlið á heimsvísu og jafnvel þó ég kveðji fyrirtækið á þessari stundu mun ég fylgjast spenntur með því vaxa og dafna á komandi árum."