Jeratún ehf., einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar, tapaði 4,9 milljónum króna á síðasta ári. Bæjarfélögin bera ábyrgð á skuldbindingum félagsins. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2010 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 31. mars 2011. Í tilkynningu segir:

„Tap félagsins á árinu 2010 var 4.922 þús. kr. og í lok þess var eigið fé neikvætt um sem nam 41.380 þús. kr. samkvæmt ársreikningi. Ástæða fyrir þessu tapi má rekja til mikils fjármagnskostnaðar og of lágrar húsaleigu. Stjórnin mun leggja það til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið um 21 milljón.

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með ábendingu.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána 493,8 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru kr. 52.480.416 á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.“