Leiðandi hagvísir Analytica reyndist óbreyttur í maí. Gildi fyrir mars og apríl voru hins vegar endurskoðuð lítillega niðurávið. Hagvísirinn bendir til að hægja sé á hagvexti. Að teknu tilliti til áhrifa árstíðasveiflu gæti landsframleiðsla dregist saman á milli fyrsta og annars ársfjórðungs þótt hagvöxtur á ársgrunni geti áfram orðið yfir langtímaleitni. Þetta kemur fram í frétt Analytica.

Þrír af sex undirliðum lækka frá í apríl en mest áhrif til lækkunar hafa samdráttur í ferðamannafjölda og lækkun væntingavísitölu. Langtímauppleitni mikilvægra undirþátta er þó enn sterk. Áhættuþættir í ytra umhverfi sem ógnað gætu hagvexti eru einkum tengdir stöðunni í alþjóðastjórnmálum.

Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Það er hlutverk vísitölunnar að veita skýra sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Vísitalan er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.