JJB Sports Plc, sem er að hluta í eigu Exista, gaf í dag út afkomuviðvörun en félagið rekur 420 íþróttavöruverslanir í Bretlandi. Fram kemur í viðvöruninni að uppgjör fyrir fyrrihluta ársins sýndi hagnað fyrir skatt upp á átta milljónir punda (einn milljarður króna) sem er 3,5 milljónum punda (464 milljónir króna) undir væntingum. Það er Vegvísir Landsbankans sem greinir frá.

?Meginskýringin á 4,4% minni sölu nú í sumar en á sama tíma í fyrra er að í fyrra var mikil sala tengd heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem haldið var síðastliðið sumar. Hlutabréf í JJB lækkuðu um tæplega 16% í kjölfar tilkynningarinnar og gengið fór niður fyrir 167 pens á hlut innan dags sem er lægsta gengi félagsins frá því í janúar 2006,? segir í Vegvísi.

Þar segir að Exista keypti 29% hlut í JBB til helminga við aðra í júní 2006. Seljandinn var fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Dave Whelan, stofnandi JJB Sports og stjórnarformaður Wigan. Verðið var 275 pens á hlut eða samtals 190 m.GBP.